> Til Forsíðu

Heimagistingin er álíka langt frá miðborginni og Skeifan er frá Lækjartorgi í Reykjavík


NÁKVÆMT STAÐSETNINGGARKORT:

KORT AF AMAGER STRANDPARK SEM ER Í GÖNGUFÆRI VIÐ GISTISTAÐ:

KORT AF STAÐSETNINGU MIÐA VIÐ FLUGVÖLL OG MIÐBORG:

KORT AF DEN BLÅ PLANETSEM ER Í GÖNGUFÆRI VIÐ GISTISTAÐ:

 


UPPLÝSINGAR:

Ef þið akið frá Kastrup flugvelli:

Hafið Hotel Hilton á vinstri hönd og flugstöðina á hægri hönd akið 3/4 af hringtorgi við Statoil og Netto fylgið skiltinu sem vísar á Kastrup (Akið alls ekki út á hraðbrautina sem er merkt Malmø eða Centrum ). Akið Amager strandvej ( fram hjá 1 umferðaljósum ) og beygið til vinstri Hedegaardsvej ( 3 gata eftir umferðaljósljósin ) og akið undir brúna við nýju Metro stöðina og fram hjá Park Inn Hotel sem er á vinstri hönd beygið til hægri Sumatravej ( sem er 2 gatan eftir Park Inn Hotel), beygið 2 götu til vinstri inn í Birmavej. Við erum nr 50A ( á vinstri hönd )og það er aðeins innkeyrslan til okkar út að götunni.

það er skilti með húsnúmerinu og ör sem vísar inn innkeyrsluna.

( Ef að þið komið akandi hraðbrautina þá fylgið skiltunum til Kastrup flugvallar og fylgið síðan leiðbeiningunum hér að ofan. )

Þið getið prentað út kort af staðsetningu og haft með.



Ef þið takið leigubíl:

Segið bílstjóranum að þið viljið að hann aki Amager strandvej, Hedegaardsvej og Sumatravej. Látið bílstjórann finna Birmavej á Krakskorti ( sem allir bílstjórar eru með ) áður en hann kveikir á gjaldmælinum og ekur af stað. Við erum nr 50A og það er aðeins innkeyrslan til okkar út að götunni.

það er skilti með húsnúmerinu og ör sem vísar inn innkeyrsluna.

Þið getið prentað út kort af staðsetningu og sýnt Bílstjóranum það.



Ef þið takið Metró:

Þú tekur METRO á Kastrup flugvelli í átt til borgarinnar, Þú ferð út á Metrostöðinni Femøren.
Þú gengur niður tröppurnar frá Metrostöðinni og beygir til vinstri
Hedegaardsvej og gengur fram hjá fram hjá Park Inn Hotel sem er á vinstri hönd, gangtu fram hjá bílastæðunum við hótelið og fram hjá gaflinum á 2 raðhúsum, þá kemur þú að Nordmarksvej,farðu þá yfir Hedegaardsvej og beygðu til hægri Sumatravej sem er 2 gatan eftir Park Inn Hotel. ( Nordmarksvej skiptir um nafn þegar að yfir Hedegaardsvej er komið og heitir þá Sumatravej ) Beygðu svo 2 götu til vinstri inn í Birmavej.
Við erum nr 50A ( á vinstri hönd )og það er aðeins innkeyrslan til okkar út að götunni.
það eru 2 tré í pottum með húsnúmerinu sitt hvoru megin við innkeyrsluna og í innkeyrslunni er skilti með húsnúmerinu og ör sem vísar inn innkeyrsluna. Þetta er svona 3 til 4 mínútna göngutúr..



Góð yfirlitskort yfir staðsetningu:

Ef að þið viljið skoða nánar kort af staðsetningu, viljum við benda á að þið getið farið á:

http://www.krak.dk

eða

http://earth.google.com/



 
 Birmavej 50 A     2300 København S      Sími: 0045 30 36 90 44     Sími: 0045 30 36 50 44       Sími: 0045 32 55 20 44